{"code":"1111","title":"Störf kjörinna fulltrúa","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"111","title":"Störf kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna","level":3},"description":"Störf kjörinna fulltrúa fela í sér að ákveða og framkvæma stefnu ríkis, sveitarstjórna eða alþjóðastofnana og setja, staðfesta, breyta eða fella úr gildi lög, reglugerðir, opinberar samþykktir og reglur. Þar á meðal eru kjörnir og skipaðir fulltrúar löggjafarþings, ríkis og sveitarstjórna.","tasks":["að stýra eða taka þátt í fundum löggjafarstofnana og stjórnsýslustofnana,","að ákveða, setja fram og stýra framkvæmd stefnu ríkis eða sveitarstjórna,","að setja, staðfesta, breyta og fella úr gildi lög, reglugerðir, opinberar samþykktir og reglur,","að sitja í opinberum stjórnum eða nefndum,","að setja sig inn í mál er varða almannahag og gæta hagsmuna kjördæmis,","að sækja viðburði og fundi á opinberum vettvangi, koma fram fyrir hönd þjóðar og veita upplýsingar um fyrirætlanir stjórnvalda,","að hafa yfirumsjón með túlkun og framkvæmd stjórnarstefnu og löggjafar af hálfu ráðuneyta og stofnana."],"example_titles":["alþingismaður","borgarstjórnarfulltrúi","forseti Alþingis","forseti Íslands","oddviti","ráðherra","sveitarstjórnarfulltrúi"],"notes":null}