{"code":"1112","title":"Störf æðstu embættismanna ríkis og sveitarstjórna","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"111","title":"Störf kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna","level":3},"description":"sveitarstjórna Störf æðstu embættismanna ríkis og sveitarstjórna fela í sér að veita stjórnvöldum ráðgjöf um stefnumörkun, hafa yfirumsjón með túlkun og framkvæmd á stefnu stjórnvalda og lagasetningu ráðuneyta og stjórnsýslustofnana, koma fram fyrir hönd þjóðar erlendis og sinna skyldum verkefnum fyrir hönd milliríkjastofnana.","tasks":["að veita ríki eða sveitarstjórnum og kjörnum fulltrúum ráðgjöf um stefnumál,","að veita ráðgjöf við undirbúning ríkisfjárlaga, laga og reglugerða, þar á meðal lagabreytinga,","að marka stefnu ráðuneyta eða opinberra stofnana í samræmi við löggjöf og stefnu stjórnvalda,","að móta eða samþykkja og meta áætlanir og verklag fyrir framkvæmd stefnu stjórnvalda í samvinnu eða samráði við stjórnvöld,","að yfirfara, meta og samþykkja skjöl, yfirlit og skýrslur frá öðrum stjórnendum og starfsfólki,","að tryggja viðeigandi verklag við gerð fjárhagsáætlana,","að kynna stefnumál, áætlanir eða fjárhagsáætlanir fyrir opinberum nefndum,","að hafa yfirumsjón með túlkun og framkvæmd ráðuneyta og opinberra stofnana á lögum og stefnu stjórnvalda."],"example_titles":["ráðuneytisstjóri","ríkissaksóknari","ríkisskattstjóri","sendiherra","sýslumaður"],"notes":"Æðsti stjórnandi stofnunar er flokkaður hér ef helstu verkefni í starfi eru í samræmi við lýsingu starfaflokks. Aðrir stjórnendur stofnana í sama stjórnendalagi flokkast í starfaflokk 1120. Stjórnendur sem flokkast hér eru oft yfir öðrum stjórnendum sem flokkast í deildir 12, 13 og 14."}