{"code":"1120","title":"Störf forstjóra og framkvæmdastjóra","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"112","title":"Störf forstjóra og framkvæmdastjóra","level":3},"description":"Störf forstjóra og framkvæmdastjóra fela í sér að ákveða og setja fram stefnu, skipuleggja, stýra, samhæfa og meta heildarstarfsemi fyrirtækja og stofnana (utan hagsmunasamtaka) með aðstoð annarra stjórnenda og fylgjast með rekstri og afkomu skipulagsheildar.","tasks":["að skipuleggja, stýra og samhæfa starfsemi fyrirtækis eða stofnunar,","að fylgjast með rekstri og afkomu,","að setja markmið, ákveða stjórnunaraðferðir, reglur og framkvæmdaáætlanir í samræmi við setta stefnu,","að koma að stefnumótun fyrirtækis eða stofnunar,","að gera fjárhagsáætlanir, stýra útgjöldum og tryggja hagkvæma nýtingu fjármagns,","að fylgjast með og meta afkomu miðað við sett markmið og stefnu,","að ráðfæra sig við starfsfólk og fara yfir tillögur og skýrslur,","að koma fram fyrir hönd skipulagsheildar,","að koma að eða samþykkja val á millistjórnendum."],"example_titles":["bankastjóri","forstjóri","stjórnandi í framkvæmdastjórn"],"notes":"Forstjórar og framkvæmdastjórar stærri fyrirtækja og stofnana, þar sem eru fleiri en eitt lag stjórnenda í skipuriti, eru flokkaðir hér. Stjórnendur sem flokkast hér eru yfir öðrum stjórnendum sem flokkast í deildir 12, 13 og 14. Ef um er að ræða eitt lag stjórnenda í fyrirtæki eða stofnun flokkast forstjóri og framkvæmdastjóri í viðeigandi flokk innan deilda 12, 13 eða 14."}