{"code":"1212","title":"Störf stjórnenda í mannauðsmálum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"121","title":"Störf stjórnenda í fjármálum, mannauðsmálum og stefnu- og áætlanagerð","level":3},"description":"Störf stjórnenda í mannauðsmálum fela í sér að skipuleggja, stýra og samræma mannauðsmál innan skipulagsheildar, eiga samskipti við aðila vinnumarkaðarins varðandi kjaramál og réttindi og vera ráðgefandi og til aðstoðar varðandi starfsmannabreytingar.","tasks":["að skipuleggja, stýra og samræma starfsemi, reglur og verklag á sviði mannauðsmála innan skipulagsheilda,","að skipuleggja og samræma verklag fyrir ráðningar, þjálfun, stöðuhækkanir, flutning í starfi, starfslok og uppsagnir,","að skipuleggja og koma að launa- og kjaramálum starfsfólks,","að hafa umsjón með aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi starfsfólks,","að gera greiningar og áætlanir varðandi launakostnað og hagstæða nýtingu mannauðs og fjármagns,","að skipuleggja og stýra daglegum rekstri,","að tryggja að farið sé eftir lögum og reglum er varða réttindi starfsfólks, heilbrigði og öryggi á vinnustað, jafnrétti og önnur hagsmunamál,","að hafa yfirumsjón með ráðningum, þjálfun og starfsþróun,","að ráðfæra sig við aðra stjórnendur skipulagsheildar,","að koma fram fyrir hönd skipulagsheildar."],"example_titles":["mannauðsstjóri (aðallega við stjórnun)","starfsmannastjóri (aðallega við stjórnun)"],"notes":null}