{"code":"1342","title":"Störf stjórnenda í heilbrigðisþjónustu","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"134","title":"Störf stjórnenda í fræðslustarfsemi, heilbrigðis, félags- og fjármálaþjónustu","level":3},"description":"Störf stjórnenda í heilbrigðisþjónustu fela í sér að skipuleggja, stýra, samræma og meta heilbrigðisþjónustu á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og öðrum stofnunum og fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu.","tasks":["að stýra rekstri og þjónustu einingar eða skipulagsheildar,","að hafa umsjón með og stýra vinnu starfsfólks í heilbrigðisþjónustu,","að setja markmið fyrir rekstrareiningu eða skipulagsheild,","að hafa umsjón með öryggisreglum, ráðningum og þjálfun starfsfólks,","að þróa, innleiða og stýra ferlum og stöðlum er snúa að verklagi, reglum og kröfum til starfsfólks,","að greina, meta þörf og fylgjast með nýtingu sjúkraplássa, húsnæðis og aðfanga,","að gera fjárhagsáætlanir, rekstrarskýrslur og stýra útgjöldum,","að vera til ráðgjafar um aðgerðir til að bæta heilbrigðisþjónustu,","að koma fram fyrir hönd skipulagsheildar."],"example_titles":["stjórnandi á sjúkrahúsi"],"notes":null}