{"code":"1345","title":"Störf stjórnenda í fræðslustarfsemi","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"134","title":"Störf stjórnenda í fræðslustarfsemi, heilbrigðis, félags- og fjármálaþjónustu","level":3},"description":"Störf stjórnenda í fræðslustarfsemi fela í sér að skipuleggja, stýra, samræma og meta mennta- og rekstrarþætti í grunnskólum, framhaldsskólum, háskólum og annarri fræðslustarfsemi.","tasks":["að skipuleggja kennsluskrá í samræmi við aðalnámskrár,","að innleiða ferla og verklag fyrir starfsemi skóla og skráningu nemenda,","að sjá um rekstur, gera fjárhagsáætlanir og stýra fjárveitingum til kaupa, svo sem á búnaði og þjónustu,","að stýra og leiðbeina kennurum, fræðafólki og starfsfólki á skrifstofu,","að meta störf kennara, námsmarkmið og kennsluefni,","að kynna nám og koma fram fyrir hönd skóla eða starfsemi,","að þróa og framfylgja reglum um aga,","að hafa umsjón með öryggisreglum, ráðningum og þjálfun starfsfólks."],"example_titles":["deildarstjóri í háskóla","skólameistari framhaldsskóla","skólastjóri grunnskóla"],"notes":null}