{"code":"2111","title":"Sérfræðistörf í eðlis- og stjörnufræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"211","title":"Sérfræðistörf í eðlis- og jarðvísindum","level":3},"description":"Sérfræðistörf í eðlis- og stjörnufræði fela í sér að stunda rannsóknir og endurskoða eða þróa hugtök, kenningar og vinnuaðferðir sem varða efni, orku, öfl, tíma og rúm og innbyrðis tengsl eðlisfræðilegra fyrirbæra. Verkefnin felast einnig í að hagnýta vísindalega þekkingu á eðlis- og stjörnufræði í iðnaði, læknisfræði og öðrum greinum.","tasks":["að rannsaka og endurskoða eða þróa hugtök, kenningar og vinnuaðferðir á sviði eðlis- og stjörnufræða,","að gera tilraunir, prófanir og greiningar, svo sem í aflfræði, varmafræði, stjörnufræði, kjarneðlisfræði, orkuframleiðslu og -dreifingu,","að meta, túlka og birta niðurstöður rannsókna, einkum með tölfræðilegum aðferðum og reiknilíkönum,","að tryggja réttar mælingar og eiginleika skammta sem notaðir eru við lækningar,","að prófa og meta búnað fyrir myndgreiningar, læknismeðferðir og skammtamælingar,","að skoða, greina og túlka fyrirbæri í himingeimnum og þróa aðferðir, líkön og tækni til að auka þekkingu á siglingafræði, gervihnattafjarskiptum, geimrannsóknum, stjarnfræðilegum fyrirbærum og geimgeislun,","að þróa, innleiða og viðhalda stöðlum og aðferðalýsingum fyrir mælingar á eðlisfræðilegum fyrirbærum og notkun á geislatækni í iðnaði og í læknisfræðilegum tilgangi,","að skrifa fræðilegar greinargerðir og skýrslur."],"example_titles":["eðlisfræðingur","stjörnufræðingur"],"notes":"Störf eðlisfræðinga flokkast hér þó þeir geti verið óaðskiljanlegur hluti heilbrigðisstarfsfólks sem flokkast í deild 22 Sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum."}