{"code":"2112","title":"Sérfræðistörf í veðurfræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"211","title":"Sérfræðistörf í eðlis- og jarðvísindum","level":3},"description":"Sérfræðistörf í veðurfræði fela í sér að vinna og miðla veðurspám fyrir flugsamgöngur, siglingar, landbúnað og til upplýsingar fyrir almenning. Veðurfræðingar stunda rannsóknir sem tengjast samsetningu, uppbyggingu og hreyfingu andrúmsloftsins.","tasks":["að rannsaka hreyfingu andrúmslofts, loftþrýsting, hitastig, skýjamyndun, úrkomu, rafleiðni og sólargeislun, rakastig og ummyndun mengunarefna,","að skoða og greina gögn frá veðurathugunarstöðvum, ratsjár- og gervihnattamyndir og spá fyrir um veðurskilyrði,","að undirbúa og birta veðurkort, veðurspár og viðvaranir sem tengjast veðurfyrirbærum og miðla upplýsingum í fjölmiðlum,","að stjórna veðurfarstilraunum varðandi skýja- og þokudreifingu, regnframleiðslu og aðrar veðurbreytingar,","að taka þátt í rannsóknum á áhrifum veðurs á umhverfið,","að greina hvaða áhrif athafnir manna og framkvæmdir í iðnaði hafa á andrúmsloftið og loftgæði og þróa mótvægisaðgerðir í samstarfi við aðra sérfræðinga,","að hanna, prófa og þróa nýjan búnað og verklag fyrir öflun veðurgagna,","að rannsaka og bæta eða þróa hugtök, kenningar og vinnuaðferðir og skrifa fræðilegar greinargerðir og skýrslur."],"example_titles":["veðurfræðingur"],"notes":null}