{"code":"2114","title":"Sérfræðistörf í jarðvísindum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"211","title":"Sérfræðistörf í eðlis- og jarðvísindum","level":3},"description":"Sérfræðistörf í jarðvísindum fela í sér að stunda rannsóknir, endurskoða eða þróa hugtök, kenningar og vinnuaðferðir eða nota vísindalega þekkingu á sviðum jarðefnaleitar og -vinnslu, vatnsverndar, mannvirkjagerðar, fjarskipta og siglingafræði, auk þess að vega og meta áhrif framkvæmda og förgunar úrgangs á umhverfið.","tasks":["að rannsaka, endurskoða eða þróa hugtök, kenningar og vinnuaðferðir á sviði jarðfræði og jarðeðlisfræði,","að rannsaka samsetningu og uppbyggingu jarðskorpunnar, skoða berg, steintegundir og steingervinga til að rekja þróun lífs á jörðinni, greina aldur og eðli jarðmyndana og vega og meta hugsanlega notkun og vinnslu jarðefna,","að nota jarðfræðiþekkingu á sviði byggingarverkfræði, svo sem í tengslum við framkvæmdir á stíflum, brúm-, göngum- og stórum byggingum og við endurheimt lands,","að rannsaka og mæla þyngdarafl, rafbylgjur, hita og segulkrafta,","að meta þyngd, stærð og massa jarðar, samsetningu og uppbyggingu möttuls og rannsaka eðli og virkni eldfjalla, jökla og jarðskjálfta,","að kortleggja segulsvið jarðar,","að rannsaka og mæla eðliseiginleika lofts og sjávar,","að staðsetja og ákvarða eðli og umfang olíu-, gas- og steinefnaauðlinda með aðferðum skjálftafræði, rafsegulfræði, geislamælifræði og þyngdar- og segulmælingum,","að finna byggingarefni í jörðu og ákvarða nothæfi þess, svo sem fyrir vegagerð,","að rannsaka grunn- og yfirborðsvatn,","að veita ráðgjöf á sviði urðunar sorps og endurheimt mengaðra svæða."],"example_titles":["jarðskjálftafræðingur","jöklafræðingur Sérfræðistörf í stærðfræði og tölfræði Sérfræðistörf í stærðfræði og tölfræði fela í sér að rannsaka, endurskoða eða þróa hugtök, kenningar, líkön og aðferðir og hagnýta þá þekkingu í margvíslegum verkefnum á sviði verkfræði, viðskipta, félagsvísinda o.fl."],"notes":null}