{"code":"2131","title":"Sérfræðistörf í líffræði og skyldum greinum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"213","title":"Sérfræðistörf í lífvísindum","level":3},"description":"Sérfræðistörf í líffræði og skyldum greinum fela í sér að rannsaka lífverur og samspil þeirra við umhverfið, auka þekkingu og finna lausnir á sviði umhverfis- og heilbrigðismála. Fólk sem sinnir þessum störfum vinnur á fjölbreyttum fræðasviðum, svo sem grasafræði, dýrafræði, vistfræði, sjávarlíffræði, erfðafræði, ónæmisfræði, lyfjafræði, lífeðlisfræði, örverufræði og veirufræði.","tasks":["að sinna rannsóknum á rannsóknarstofum og á vettvangi til að auka vísindalega þekkingu á lífverum, sannprófa kenningar og leysa vandamál, svo sem á sviði landbúnaðar, umhverfis- og heilbrigðismála og þróa nýjar vörur, verkferla og tækni,","að þróa og stýra tilraunum og prófunum,","að safna sýnum úr mönnum, dýrum, skordýrum og plöntum og rannsaka uppruna, þróun, efnafræðilega og líffræðilega gerð, samsetningu, lífsferil og æxlunarferli,","að skoða lífverur með ýmsum sérhæfðum búnaði, tækjum og tækni, svo sem rafeindasmásjá, staðsetningarkerfum, líftækni, gervitunglamyndum, erfðafræðitækni, myndgreiningu, PCR prófum og tölvugerðum líkönum,","að greina, flokka, skrá og hafa eftirlit með lífverum og viðhalda gagnagrunnum,","að skrifa fræðilegar greinargerðir og skýrslur þar sem greint er frá rannsóknum og niðurstöðum,","að þróa og framkvæma mat á umhverfisáhrifum til að greina breytingar sem stafa af náttúrulegum eða mannlegum þáttum,","að veita ráðgjöf til ríkisstjórna, stofnana og fyrirtækja um verndun og stjórnun náttúruauðlinda og áhrif loftslagsbreytinga og mengunar."],"example_titles":["grasafræðingur","líffræðingur"],"notes":"Störf hjúkrunarfræðinga og lækna þar sem verkefni snúa að mestu eða öllu leyti að líflæknisfræðilegum rannsóknum en ekki klínískum verkefnum flokkast hér."}