{"code":"2132","title":"Sérfræðistörf við ráðgjöf í búskap, skógrækt og fiskveiðum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"213","title":"Sérfræðistörf í lífvísindum","level":3},"description":"fiskveiðum Sérfræðistörf við ráðgjöf í búskap, skógrækt og fiskveiðum fela í sér að rannsaka og veita ráðgjöf við skipulag búskapar, skógræktar og fiskveiða, þ.m.t. ræktun, frjóvgun, uppskeru, samsetningu jarðvegs, sjúkdómavarnir, næringu, skiptiræktun og markaðssetningu. Fólk sem sinnir þessum störfum þróar tækni til að auka framleiðni, rannsakar og þróa áætlanir og stefnumörkun fyrir búskap og fiskveiðar.","tasks":["að safna og greina gögn og sýni sem tengjast framleiðslu, fóðri, jarðvegi, vatnsgæðum og öðrum þáttum sem hafa áhrif á búskap, skógrækt eða framleiðslu fiskafurða,","að veita ráðgjöf um aðferðir til að bæta framleiðslu á uppskeru, búfé og fiski,","að veita ráðgjöf um sjúkdóma í búfé og plöntum, meindýra- og illgresiseyðingu, umbætur á jarðvegi, búfjárrækt og fóðrun,","að rannsaka umhverfisþætti sem hafa áhrif á ræktun og vaxtarhraða nytjaplantna, dýra, fiskistofna og trjáa,","að rannsaka ferðir, vöxt, æti og hrygningu fisktegunda og þróa aðferðir við að safna hrognum og frjóvga og klekja út seiðum,","að þróa verklag og tækni til umbóta í landbúnaði og auka skilvirkni framleiðslu,","að stýra auðlindum skóga og sjávar til að hámarka ávinning þeirra til lengri tíma,","að rannsaka æxlun og ræktun trjáa í skógum,","að rannsaka, skipuleggja og innleiða verklag til að takast á við afleiðingar elda, flóða, þurrka, jarðvegsrofs, meindýra og sjúkdóma,","að skrifa fræðilegar greinargerðir og skýrslur og stýra upplýsingafundum og fyrirlestrum fyrir aðila í landbúnaði, skógrækt, sjávarútvegi og aðra hópa."],"example_titles":["jarðræktarfræðingur","skógræktarfræðingur"],"notes":null}