{"code":"2133","title":"Sérfræðistörf í umhverfisvernd","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"213","title":"Sérfræðistörf í lífvísindum","level":3},"description":"Sérfræðistörf í umhverfisvernd fela í sér að rannsaka og meta mengun í lofti, vatni og jarðvegi, hávaðamengun, loftslagsbreytingar, eitraðan úrgang, landeyðingu og eyðingu náttúruauðlinda. Þróa áætlanir og lausnir til að vernda, varðveita, endurheimta, lágmarka og koma í veg fyrir frekari skemmdir á umhverfinu.","tasks":["að rannsaka, safna sýnum og vinna greiningar á rannsóknarstofu og á vettvangi, til að greina ástæður umhverfisvandamála og koma með lausnir sem hindra, stýra og draga úr skaðlegum áhrifum,","að meta líkleg áhrif fyrirætlaðra aðgerða, verkefna og þróunar á umhverfið og veita ráðgjöf um framhaldið,","að þróa og samræma innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir,","að meta reglufylgni fyrirtækja og stofnana gagnvart lögum, reglugerðum og innri verklagsreglum, greina brot á slíkum reglum og ákvarða viðeigandi aðgerðir til úrbóta,","að veita ráðgjöf til fyrirtækja og stofnana um hvernig best sé að takast á við umhverfisvandamál, í því skyni að draga úr umhverfisspjöllum og lágmarka fjárhagslegt tjón,","að rannsaka áhrif og árangur af náttúruvernd og þróa áætlanir um verndun."],"example_titles":["ráðgjafi í umhverfisvernd","sérfræðingur í loftslagsmálum"],"notes":null}