{"code":"2141","title":"Sérfræðistörf í iðnaðar- og framleiðsluverkfræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"214","title":"Sérfræðistörf í verkfræði (að undanskildum raftæknigreinum)","level":3},"description":"Sérfræðistörf í iðnaðar- og framleiðsluverkfræði fela í sér að greina, hanna, skipuleggja og hafa umsjón með uppsetningu, rekstri og viðhaldi iðnaðarframleiðsluferla og -búnaðar. Sérfræðingar sem sinna þessum störfum útbúa og þróa áætlanir um samhæfingu framleiðsluþátta og meta hagkvæmni og öryggi.","tasks":["að skoða starfslýsingar, skipurit og verklýsingar til að ákvarða störf og ábyrgð starfsmanna og starfseininga,","að koma á fót áætlun um mælingar starfa og þróa staðla um nýtingu vinnuafls,","að greina vinnuaflsnotkun, hönnun aðstöðu, rekstrarupplýsingar, framleiðsluáætlanir og kostnað til að ákvarða hagkvæmustu nýtingu vinnuafls og búnaðar,","að þróa tæknilýsingar fyrir framleiðslu og ákveða notkun efna, búnaðar, afkastagetu og uppsetningu verksmiðja og kerfa,","að skipuleggja og stýra verkefnavinnu og afhendingu efna, tækja og búnaðar,","að koma á fót stöðlum og stefnum um uppsetningu, breytingar, gæðaeftirlit, prófanir, skoðanir og viðhald í samræmi við verklags- og öryggisreglur,","að gera úttekt á verksmiðju til að viðhalda eða bæta afköst, stýra viðhaldi mannvirkja og búnaðar,","að veita stjórnendum ráðgjöf um nýjar framleiðsluaðferðir, -tækni og -búnað,","að tryggja stöðugt framboð birgða í samráði við starfsfólk innkaupa, birgða- og eftirlitsmála."],"example_titles":["iðnaðarverkfræðingur"],"notes":null}