{"code":"2143","title":"Sérfræðistörf í umhverfisverkfræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"214","title":"Sérfræðistörf í verkfræði (að undanskildum raftæknigreinum)","level":3},"description":"Sérfræðistörf í umhverfisverkfræði fela í sér að greina, veita ráðgjöf um og koma í veg fyrir eða ráða bót á neikvæðum umhverfisáhrifum mannlegra athafna. Sérfræðistörf í umhverfisverkfræði leggja einnig mat á umhverfisáhrif í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og beita aðferðum verkfræðinnar varðandi mengunarvarnir, endurvinnslu og sorpförgun.","tasks":["að leggja mat á umhverfisáhrif bygginga, mannvirkja og annarra framkvæmda,","að skoða aðstöðu og verkáætlanir í tengslum við iðnaðar- og búsetusvæði og tryggja fylgni við gildandi reglugerðir um umhverfismál,","að hanna og hafa eftirlit með þróun kerfa, ferla og stýribúnaðar og hafa eftirlit með vatns-, loft- eða jarðvegsgæðum,","að afla, uppfæra og viðhalda áætlunum, leyfum og stöðluðum rekstraraðferðum,","að veita verkfræðilega og tæknilega aðstoð við úrbætur í umhverfismálum,","að fylgjast með framvindu áætlana um umbætur í umhverfismálum,","að veita ráðgjöf til fyrirtækja og stofnana um verklag við hreinsun mengaðra svæða og lágmörkun mengunar og úrgangs."],"example_titles":["umhverfisverkfræðingur"],"notes":null}