{"code":"2144","title":"Sérfræðistörf í vélaverkfræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"214","title":"Sérfræðistörf í verkfræði (að undanskildum raftæknigreinum)","level":3},"description":"Sérfræðistörf í vélaverkfræði fela í sér að greina, veita ráðgjöf, hanna og stjórna framleiðslu og uppsetningu véla og vélarhluta, loftfara, skipa og iðnaðarverksmiðja, búnaðar og kerfa, ráðleggja og stýra starfsemi þeirra, viðhaldi og viðgerðum, koma upp eftirlits- og gæðastöðlum eða rannsaka og ráðleggja um vélfræðilega þætti tiltekinna efna, afurða eða ferla.","tasks":["að hanna vélbúnað og tæki til framleiðslu, svo sem fyrir námuvinnslu, byggingar, landbúnað og aðra iðnaðarferla,","að veita ráðgjöf um og hanna gufuhreyfla, brunahreyfla og aðra órafknúna hreyfla og vélar sem knýja farartæki, iðnaðarvélar og aðrar vélar,","að veita ráðgjöf um og hanna skipsskrokka, yfirbyggingar og drifkerfi skipa, verksmiðja og búnaðar til losunar, stjórnunar og nýtingar orku, hitaveitu-, loftræsti- og kælikerfi, stýrisbúnað, dælur og annan vélbúnað,","að hanna flugskrokka, undirvagna og annan búnað fyrir loftför sem og fjöðrunarkerfi, hemla, yfirbyggingar og aðra íhluti ökutækja,","að veita ráðgjöf um og hanna órafknúna hluta tækjabúnaðar eða vöru, svo sem í tölvum, mælingatækjum og myndavélum,","að innleiða eftirlitsstaðla og -verklag sem tryggir skilvirkan rekstur og öryggi véla, vélbúnaðar, tækja, mótora, aflvéla, iðnaðarverksmiðja, búnaðar eða kerfa,","að tryggja að búnaður, rekstur og viðhald séu í samræmi við hönnun og öryggisstaðla."],"example_titles":["skipaverkfræðingur","vélaverkfræðingur"],"notes":null}