{"code":"2145","title":"Sérfræðistörf í efnaverkfræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"214","title":"Sérfræðistörf í verkfræði (að undanskildum raftæknigreinum)","level":3},"description":"Sérfræðistörf í efnaverkfræði fela í sér að greina, þróa, veita ráðgjöf um og stýra framleiðslu ýmissa efna og efnatengdra afurða, svo sem olíu, olíuafurða, matvæla og drykkjarvara, lyfja eða gerviefna, stýra viðhaldi og viðgerðum efnaverksmiðja og tengds búnaðar, meta framleiðsluaðferðir, setja upp gæðastaðla og rannsaka og veita ráðgjöf um efni, vörur eða verkferla.","tasks":["að greina, veita ráðgjöf um og þróa efnaferla, svo sem hreinsun hráolíu og annars vökva eða lofttegunda,","að þróa og framleiða hráolíu, matvæli og drykkjarvörur, lyf eða gerviefni,","að ákveða efni og efnaframleiðsluaðferðir og setja upp gæðastaðla,","að setja staðla og koma á verklagi sem tryggir öryggi og skilvirkni efnaframleiðslu,","að hanna efnaverksmiðjubúnað og ferli til framleiðslu á efnum og afurðum,","að framkvæma prófanir á öllum framleiðslustigum fyrir stýringu hitastigs, þéttleika, eðlisþyngdar og þrýstings,","að undirbúa mat á framleiðslukostnaði og útbúa skýrslur fyrir stjórnendur,","að framkvæma rannsóknir, svo sem á nýjum vörum í tilraunaverksmiðju."],"example_titles":["efnaverkfræðingur"],"notes":null}