{"code":"2146","title":"Sérfræðistörf í námaverkfræði og málmvinnslu","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"214","title":"Sérfræðistörf í verkfræði (að undanskildum raftæknigreinum)","level":3},"description":"Sérfræðistörf í námaverkfræði og málmvinnslu fela í sér að greina, hanna, þróa og viðhalda framleiðsluaðferðum fyrir vinnslu málmtegunda og hráefna úr jörðu og að þróa ný málmblendi, keramik og önnur efni.","tasks":["að ákveða staðsetningu og skipuleggja námugröft kola, málmgrýtis, steinefna og byggingarefna á borð við grjót og möl,","að velja skilvirkar aðferðir við námugröft og vinnslu og hentugar gerðir véla, skipuleggja vinnusvæði og stjórna byggingu stokka og ganga,","að ákveða borunarstaði og stýra flæði vatns, olíu eða gass úr brunnum,","að skipuleggja og stjórna varðveislu, meðhöndlun og flutningi á vatni, olíu eða gasi,","að setja öryggisstaðla og verklag og koma upp skyndihjálparaðstöðu,","að rannsaka og þróa aðferðir við vinnslu málma og veita ráðgjöf um nýtingu þeirra,","að annast tæknilega ráðgjöf og samskipti við aðra sérfræðinga, svo sem jarðfræðinga og jarðeðlisfræðinga,","að rannsaka jarðlög eða námusvæði fyrir mat á vinnslu og framleiðslu."],"example_titles":["námaverkfræðingur"],"notes":null}