{"code":"2151","title":"Sérfræðistörf í rafmagnsverkfræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"215","title":"Sérfræðistörf í verkfræði innan raftæknigreina","level":3},"description":"Sérfræðistörf í rafmagnsverkfræði fela í sér að rannsaka, ráðleggja, hanna og stjórna byggingu og rekstri rafkerfa og íhlutum þeirra, mótorum og tengdum búnaði eða rannsaka og veita ráðgjöf um aðferðir, efnisnotkun og aðra tæknilega þætti sem tengjast rafmagnsverkfræði.","tasks":["að veita ráðgjöf um og hanna raforkustöðvar og -kerfi,","að koma upp öryggiseftirliti og stýra rekstri raforkuframleiðslu, flutnings- og dreifikerfum fyrir raforku,","að veita ráðgjöf um og hanna kerfi fyrir rafmótora, rafknúin dráttartæki og annan búnað eða rafknúin heimilistæki,","að útbúa tæknilýsingar og útfærslur fyrir uppsetningu og notkun raflagnabúnaðar í iðnaði, byggingum og hlutum,","að koma á stöðlum og verklagi til að fylgjast með afköstum og öryggi raforku- og dreifikerfa, véla og búnaðar,","að ákveða framleiðsluaðferðir fyrir rafkerfi og viðhald og viðgerðir á fyrirliggjandi rafkerfum, vélum og búnaði."],"example_titles":["rafmagnsverkfræðingur","raforkuverkfræðingur"],"notes":null}