{"code":"2161","title":"Sérfræðistörf í arkitektúr","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"216","title":"Sérfræðistörf í arkitektúr, skipulagsfræði, landmælingum og hönnun","level":3},"description":"Sérfræðistörf í arkitektúr fela í sér ráðgjöf og hönnun á byggingum og öðrum mannvirkjum og að skipuleggja og hafa eftirlit með byggingu þeirra, viðhaldi og endurnýjun.","tasks":["að þróa nýjar eða bættar hugmyndir og aðferðir í arkitektúr,","að skoða vinnusvæði og veita ráðgjöf um gerð, útlit og stærð fyrirhugaðra bygginga eða breytingar á byggingum,","að veita upplýsingar varðandi hönnun, efni og áætlaðan byggingartíma í samstarfi við aðra sérfræðinga,","að útbúa verkgögn, þ.m.t. teikningar og mælingar, og samþætta byggingarlega, vélræna og fagurfræðilega þætti í lokahönnun,","að útbúa tæknilýsingar og samninga fyrir byggingaraðila og óska eftir tilboðum fyrir hönd viðskiptavina,","að greina og leita bestu lausna á vandamálum sem varða virkni og gæði innra rýmis bygginga,","að sjá um byggingar og endurnýjun þeirra og tryggja að þær samræmist tæknilýsingum og gæðastöðlum,","að sjá um tæknilegt samstarf við aðra sérfræðinga og veita ráðgjöf."],"example_titles":["arkitekt","innanhússarkitekt"],"notes":null}