{"code":"2162","title":"Sérfræðistörf í landslagsarkitektúr","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"216","title":"Sérfræðistörf í arkitektúr, skipulagsfræði, landmælingum og hönnun","level":3},"description":"Sérfræðistörf í landslagsarkitektúr fela í sér að skipuleggja og hanna opin svæði, svo sem garða, torg, skólalóðir, vegi og útivistarsvæði og skipuleggja og hafa eftirlit með byggingu, viðhaldi og endurnýjun.","tasks":["að þróa nýjar eða bættar hugmyndir og aðferðir og veita ráðgjöf um stefnu í tengslum við landslagsarkitektúr,","að skoða vinnusvæði og veita ráðgjöf um gerð, útlit og stærð fyrirhugaðra garða, vega og annarra svæða,","að gera samantekt og greiningu á gögnum um landfræðilega og vistfræðilega þætti, landform, jarðveg, gróður, lagnir, sjónræn einkenni o.fl.,","að gera skýrslur, áætlanir, skipulag vinnusvæða, teikningar, tæknilýsingar og kostnaðaráætlanir vegna lóðaskipulags, þ.m.t. að gera líkön af yfirborði, byggingum, gróðri og aðgengisleiðum,","að útbúa tæknilýsingar og samninga fyrir byggingaraðila og verktaka og óska eftir tilboðum fyrir hönd viðskiptavina,","að greina og leita bestu lausna á vandamálum sem varða virkni og gæði ytra umhverfis,","að hafa eftirlit með framkvæmdum til að tryggja samræmi við forskriftir og gæðastaðla,","að vera í samstarf við aðra sérfræðinga um tæknileg atriði og veita ráðgjöf."],"example_titles":["landslagsarkitekt"],"notes":null}