{"code":"2166","title":"Sérfræðistörf í grafískri hönnun og margmiðlunarhönnun","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"216","title":"Sérfræðistörf í arkitektúr, skipulagsfræði, landmælingum og hönnun","level":3},"description":"margmiðlunarhönnun Sérfræðistörf í grafískri hönnun og margmiðlunarhönnun fela í sér að hanna efni fyrir hljóð- og myndmiðla og vinna við myndræna útfærslu, sjónrænar brellur, hreyfimyndir og annað myndefni, svo sem fyrir tölvuleiki, kvikmyndir, tónlistarmyndbönd, prentmiðla og auglýsingar.","tasks":["að ákveða markmið og umfang hönnunar í samráði við viðskiptavini og samstarfsaðila,","að þróa og móta hugmyndir fyrir það viðfangsefni sem á að miðla,","að útbúa teikningar, hreyfimyndir og framsetningu fyrir miðlun hönnunar,","að sjá um myndræna útfærslu og hreyfimyndir samkvæmt hönnun,","að búa til tvívíðar og þrívíðar myndir og nota forrit við gerð hreyfimynda eða líkana,","að ákveða í samráði við viðskiptavini, stjórnendur og aðra er koma að máli hvaða hönnunarlausnir henta hverju sinni,","að velja og mæla með efni og miðlum til birtingar, afhendingar eða sýningar,","að útbúa ítarlega lýsingu á hönnun til framleiðslu."],"example_titles":["grafískur hönnuður","margmiðlunarhönnuður"],"notes":null}