{"code":"2212","title":"Störf við sérgreinalækningar","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"221","title":"Sérfræðistörf við lækningar","level":3},"description":"Störf við sérgreinalækningar fela í sér að rannsaka, greina, meðhöndla og fyrirbyggja ákveðnar tegundir sjúkdóma og meiðsli og önnur líkamleg og andleg veikindi hjá fólki. Störf í þessum flokki felast einnig í að stunda rannsóknir og kennslu á sviði læknisfræði.","tasks":["að skoða, meta og greina heilsufarsástand skjólstæðinga,","að leggja mat á læknisfræðilegar upplýsingar frá öðru heilbrigðisstarfsfólki,","að bóka rannsókn, röntgenmyndatöku eða aðrar greiningar fyrir skjólstæðinga og greina niðurstöður þeirra,","að ávísa lyfjum, sjá um lyfjagjöf og fylgjast með svörun sjúklings við meðhöndlun, lyfjagjöf, endurhæfingu og öðrum lækningaaðferðum,","að framkvæma skurðaðgerðir,","að meðhöndla vandamál sem upp koma fyrir, við og eftir barnsburð,","að skrá læknisfræðilegar upplýsingar um sjúklinga og skiptast á upplýsingum við aðra heilbrigðisstarfsmenn,","að framkvæma krufningar og greina dánarorsakir,","að annast rannsóknir á sértækum sjúkdómum og veikindum og skrifa fræðilegar greinargerðir,","að skipuleggja og taka þátt í aðgerðum sem hindra útbreiðslu algengra sjúkdóma."],"example_titles":["augnlæknir","geðlæknir","hjartalæknir","kvensjúkdómalæknir","skurðlæknir","svæfingalæknir"],"notes":"Störf sérgreinalækna þar sem verkefni snúa að mestu eða öllu leyti að líflæknisfræðilegum rannsóknum en ekki klínískum verkefnum flokkast í starfaflokk 2131 Sérfræðistörf í líffræði og skyldum greinum."}