{"code":"2221","title":"Sérfræðistörf við hjúkrun","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"222","title":"Sérfræðistörf við hjúkrun","level":3},"description":"Sérfræðistörf við hjúkrun fela í sér að skipuleggja og hafa umsjón með umönnun sjúklinga þar með talinni umsjón með starfi annarra heilbrigðisstarfsmanna, ráðgjöf og lyfjagjöf. Hjúkrunarfræðingar vinna ýmist sjálfstætt eða í teymum með öðru heilbrigðisstarfsfólki.","tasks":["að skipuleggja, veita og meta hjúkrunarþjónustu fyrir skjólstæðinga,","að þróa og framkvæma umönnunaráætlanir fyrir meðferð skjólstæðinga í samvinnu við annað heilbrigðisstarfsfólk,","að skipuleggja og veita umönnun og meðferð, þ.m.t. að gefa lyf og fylgjast með svörun við meðferð,","að hreinsa og búa um sár,","að skipuleggja og taka þátt í áætlunum um lýðheilsu og heilsueflandi aðgerðum innan heilbrigðiskerfisins og utan,","að skipuleggja, hafa eftirlit með og samræma störf annarra starfsmanna við hjúkrun og umönnun,","að framkvæma rannsóknir á starfsvenjum og verklagi hjúkrunar og skrifa fræðilegar greinargerðir og skýrslur."],"example_titles":["geðhjúkrunarfræðingur","hjúkrunarfræðingur","skólahjúkrunarfræðingur"],"notes":"Störf hjúkrunarfræðinga þar sem verkefni snúa að mestu eða öllu leyti að líflæknisfræðilegum rannsóknum en ekki klínískum verkefnum flokkast í starfaflokk 2131 Sérfræðistörf í líffræði og skyldum greinum."}