{"code":"2261","title":"Sérfræðistörf við tannlækningar","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"226","title":"Önnur sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum","level":3},"description":"Sérfræðistörf við tannlækningar fela í sér að greina, meðhöndla og fyrirbyggja sjúkdóma, meiðsli og frávik í tönnum, munni og kjálka.","tasks":["að greina sjúkdóma, meiðsli, frávik í tönnum, munni og kjálka með ýmsum aðferðum, svo sem röntgenmyndum,","að sjá um fyrirbyggjandi meðferðir, svo sem flúormeðferð,","að gefa deyfilyf og ávísa lyfjum í kjölfar aðgerða,","að annast tannígræðslur, ísetningu á krónum og brúm og aðgerðir á skemmdum tönnum,","að framkvæma skurðaðgerðir, svo sem tannúrdrátt og vefsýnatöku,","að mæla og gera mót af kjálka og tönnum sjúklinga og leiðbeiningar til tannsmiða,","að hanna, útbúa og setja upp hluti til tannréttinga, svo sem spangir,","að aðstoða við greiningu á almennum sjúkdómum sem koma fram með einkennum í munni, svo sem sykursýki,","að fræða sjúklinga og fjölskyldur um tannhirðu, næringu og aðrar ráðstafanir sem stuðla að góðri tannheilsu,","að hafa umsjón með aðstoðarfólki tannlækna og öðrum starfsmönnum."],"example_titles":["sérfræðingur í tannréttingum","tannlæknir","kjálkaskurðlæknir"],"notes":null}