{"code":"2262","title":"Sérfræðistörf í lyfjaverslunum og lyfjaþjónustu sjúkrahúsa","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"226","title":"Önnur sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum","level":3},"description":"sjúkrahúsa Sérfræðistörf í lyfjaverslunum og lyfjaþjónustu sjúkrahúsa fela í sér að meðhöndla, blanda og sjá um rétta dreifingu lyfja og ráðleggja og leiðbeina um notkun og aukaverkanir þeirra.","tasks":["að útbúa eða taka saman lyf samkvæmt lyfseðlum og tryggja rétta skammta og leiðbeiningar til viðskiptavina,","að blanda eða hafa umsjón með blöndun og merkingu lyfja, krema og annarra efna,","að veita upplýsingar og ráðgjöf til lækna og viðskiptavina varðandi verkanir lyfja, svo sem aukaverkanir, skammtastærðir og rétta geymslu lyfja,","að vinna með heilbrigðisstarfsfólki að því að skipuleggja, fylgjast með, endurskoða og meta gæði og skilvirkni lyfjameðferðar einstaklinga og virkni tiltekinna lyfja eða meðferða,","að sjá um geymsluaðferðir bóluefna og annarra lyfja sem hafa takmarkað geymsluþol,","að ráðleggja viðskiptavinum varðandi lyf sem ekki eru lyfseðilsskyld, sem og hjúkrunarvörur og stoðtæki fyrir algenga kvilla,","að hafa umsjón með og samræma störf lyfjatækna, starfsnema og sölufólks í lyfjaverslunum,","að gera prófanir og greina lyf til að ákvarða gerð þeirra, hreinleika og styrk samkvæmt stöðlum,","að meta merkingar, umbúðir og auglýsingar lyfjaafurða,","að safna upplýsingum og áhættulýsingum fyrir tiltekin lyf."],"example_titles":["lyfjafræðingur í apóteki","lyfjafræðingur á sjúkrahúsi"],"notes":null}