{"code":"2266","title":"Sérfræðistörf í heyrnar- og talmeinafræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"226","title":"Önnur sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum","level":3},"description":"Sérfræðistörf í heyrnar- og talmeinafræði fela í sér að meta, annast og meðhöndla vandamál í tengslum við heyrn, mál eða tjáningu einstaklinga, ávísa hjálpartækjum eða skipuleggja endurhæfingarmeðferðir vegna heyrnarskerðingar eða talerfiðleika og veita ráðgjöf um heyrnarvernd og samskiptafærni.","tasks":["að meta heyrn, talfærni og talgetu skjólstæðinga í því skyni að greina eðli heyrnar- og tjáningarvandamála,","að leggja fyrir heyrnar-, tal- eða önnur próf með sérhæfðum greiningartækjum, meta niðurstöður og ákveða rétta meðferð,","að skipuleggja, stýra og taka þátt í ráðgjöf, skimun, talendurhæfingu og öðru sem tengist heyrn og samskiptum,","að ávísa heyrnartækjum og öðrum stoðtækjum til sjúklinga eftir þörfum og leiðbeina við notkun þeirra,","að skipuleggja og stýra meðferðaráætlunum í því skyni að meðhöndla líkamlega kvilla sem hafa áhrif á tal og kyngingu,","að veita ráðgjöf og leiðsögn til heyrnar- og eða málskertra einstaklinga, fjölskyldna þeirra, kennara og annarra tengdra aðila."],"example_titles":["heyrnarfræðingur","talmeinafræðingur"],"notes":null}