{"code":"2269","title":"Sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum ót.a.s.","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"226","title":"Önnur sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum","level":3},"description":"Undir þennan starfaflokk falla sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum sem ekki eru flokkuð annars staðar í deild 22: Sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum. Þessi flokkur tekur til dæmis til iðjuþjálfa, hnykkjara, fótaaðgerðafræðinga og osteópata þar sem starfsfólk veitir þjónustu á sviði greiningar, forvarna, lækninga og endurhæfingar.","tasks":["að ræða við skjólstæðinga og nýta greiningar og próf til að meta heilsufarsástand,","að útbúa, skipuleggja og stýra meðferðaráætlunum vegna meiðsla, veikinda og annarra líkamlegra og andlegra kvilla,","að meta og skrá framvindu meðferðaráætlana og vísa skjólstæðingum til lækna eða annarra heilbrigðisstarfsmanna eftir þörfum,","að annast og meðhöndla sjúklinga með líkamsþjálfun, nuddi eða hnykkingum,","að gera einstaklingum með skerta færni kleift að sinna daglegum störfum og athöfnum á heimilum, í tómstunda-, vinnu- og skólastarfi með því að veita ráðgjöf um aðlögun aðstöðu eftir þörfum einstaklinga og hópa,","að útbúa, skipuleggja og stýra meðferðaráætlunum út frá þörfum einstaklinga og hópa, til að bæta og viðhalda líkamlegri, hugrænni, tilfinningalegri og félagslegri færni í gegnum listiðkun og handiðn, dans og hreyfingu, tónlist og aðra afþreyingu,","að ákvarða og ávísa meðferðum vegna kvilla sem hafa áhrif á virkni fóta, ökkla og tengdra hluta fótleggja vegna sjúkdóma, veikinda eða annarra líkamlegra hamlana og ráðleggja um umhirðu fóta,","að framkvæma minniháttar aðgerðir, svo sem á fæti eða á ökkla."],"example_titles":["fótaaðgerðafræðingur","hnykkir","iðjuþjálfi","listmeðferðarfræðingur","osteópati Sérfræðistörf í kennslu- og uppeldisfræði Sérfræðistörf í kennslu- og uppeldisfræði fela í sér að kenna fræðilega og verklega þætti einnar eða fleiri fræðigreina á mismunandi námsstigum, stunda rannsóknir og móta hugtök, kenningar og vinnuaðferðir í viðkomandi fræðigrein og semja fræðilegar greinargerðir og bækur."],"notes":null}