{"code":"2320","title":"Sérfræðistörf við starfsgreinakennslu","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"232","title":"Sérfræðistörf við starfsgreinakennslu","level":3},"description":"Sérfræðistörf við starfsgreinakennslu fela í sér að kenna eða leiðbeina nemendum í starfsnámi á framhaldsskólastigi og efri námsstigum og undirbúa nemendur undir störf í tilteknum starfsgreinum þar sem almennt er ekki krafist háskólamenntunar.","tasks":["að þróa, skipuleggja og aðlaga námsskrár, námsefni og kennsluaðferðir,","að meta þjálfunarþörf nemenda og eiga samskipti við aðila vinnumarkaðar og menntastofnanir,","að halda fyrirlestra og stjórna umræðum til að auka þekkingu og hæfni nemenda,","að leiðbeina og fylgjast með nemendum við notkun verkfæra, búnaðar og efna og kenna öryggisatriði til að koma í veg fyrir slys á fólki og skemmdir á búnaði,","að fylgjast með og meta vinnu og framfarir nemenda, veita endurgjöf og koma með tillögur til úrbóta,","að halda munnleg, skrifleg eða verkleg próf, meta árangur kennslu og leggja mat á hæfni,","að skrifa skýrslur og halda skrár, svo sem um námsmat, mætingu og verklega þjálfun,","að hafa umsjón með einstaklings- og hópverkefnum, starfsnámi á vinnustöðum, vinnu á rannsóknarstofu eða annarri þjálfun."],"example_titles":["kennari í bifvélavirkjun","kennari í snyrtifræði"],"notes":null}