{"code":"2351","title":"Sérfræðistörf við kennsluaðferðir og skólaeftirlit","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"235","title":"Önnur sérfræðistörf í kennslu- og uppeldisfræði","level":3},"description":"Sérfræðistörf við kennsluaðferðir og skólaeftirlit fela í sér að sinna rannsóknum og þróa eða veita ráðgjöf um kennsluaðferðir og kennslugögn, endurskoða og fara yfir störf kennara, starfsemi menntastofnana og árangur og koma með tillögur að breytingum og úrbótum.","tasks":["að rannsaka þróun námsskráa og kennsluaðferða og veita ráðgjöf um breytingar og úrbætur,","að meta og veita ráðgjöf um innihald námsgreina, námskeiða og námsmatsaðferðir,","að kynna sér ýmsar tegundir námsgagna, veita ráðgjöf um þau og sjá um innleiðingu þeirra,","að skipuleggja og sjá um vinnustofur og námskeið til að þjálfa kennara í nýju kennsluefni og -aðferðum,","að þróa uppbyggingu, innihald og markmið nýrra námsáætlana og námsleiða,","að heimsækja skóla og ræða við skólastjórnendur og kennara um námsskrár, kennsluaðferðir, búnað og önnur mál,","að útbúa skýrslur og senda menntamálayfirvöldum tillögur um mögulegar breytingar og endurbætur, svo sem á námsskrám og kennsluaðferðum."],"example_titles":["kennsluráðgjafi","námsstjóri"],"notes":null}