{"code":"2353","title":"Sérfræðistörf við tungumálakennslu","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"235","title":"Önnur sérfræðistörf í kennslu- og uppeldisfræði","level":3},"description":"Sérfræðistörf við tungumálakennslu fela í sér að kenna fullorðnum og börnum tungumál (önnur en móðurmál þeirra), vegna flutninga á milli landa, til að uppfylla kröfur um atvinnu eða atvinnumöguleika eða auðvelda þátttöku í námi. Störf í þessum flokki eru utan hins hefðbundna skólakerfis, þ.e. grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla en geta verið stuðningur við nemendur og kennara innan þess.","tasks":["að meta getu og tungumálaörðugleika nemenda og átta sig á þörfum þeirra og námsmarkmiðum,","að skipuleggja, undirbúa og sjá um kennslu og vinnustofur fyrir hópa og einstaklinga, þar sem námsefni og -framvinda er sniðin að getu og þörfum nemenda,","að semja, aðlaga og útbúa kennsluefni,","að meta námsárangur nemenda,","að aðstoða kennara og nemendur í skólum þar sem fög eru kennd á öðru tungumáli en móðurmáli nemenda,","að búa til, úthluta og fara yfir verkefni og próf,","að meta, skrá og greina frá námsárangri nemenda."],"example_titles":["tungumálakennari"],"notes":null}