{"code":"2354","title":"Sérfræðistörf við tónlistarkennslu","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"235","title":"Önnur sérfræðistörf í kennslu- og uppeldisfræði","level":3},"description":"Sérfræðistörf við tónlistarkennslu fela í sér að kenna nemendum hljóðfæraleik, söng, tónsmíðar og fræðigreinar á sviði tónlistar. Störf í þessum flokki eru utan hins hefðbundna skólakerfis, þ.e. grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla, en geta verið í samstarfi við skóla innan þess.","tasks":["að meta getu nemenda, þarfir og námsmarkmið,","að skipuleggja og undirbúa kennslu, sjá um kennslustundir og vinnustofur fyrir staka nemendur og hópa,","að leiðbeina og sýna verklega þætti við söng eða hljóðfæraleik,","að kenna nemendum að lesa og skrifa nótur,","að úthluta æfingum og kenna tónverk í samræmi við getu, áhugasvið og hæfileika nemenda,","að meta stöðu nemenda og veita ráðgjöf, gagnrýni og hvatningu,","að endurskoða námsskrá, námsefni og kennsluaðferðir,","að undirbúa nemendur fyrir próf, sýningar og námsmat,","að skipuleggja og aðstoða nemendur við áheyrnarprufur eða flutning verka."],"example_titles":["söngkennari","tónlistarkennari"],"notes":null}