{"code":"2355","title":"Sérfræðistörf við listgreinakennslu","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"235","title":"Önnur sérfræðistörf í kennslu- og uppeldisfræði","level":3},"description":"Sérfræðistörf við listgreinakennslu fela í sér að kenna nemendum aðferðir, kenningar og flutning eða framsetningu í leiklist, dansi, myndlist og öðrum listgreinum (að undanskilinni tónlist). Störf í þessum flokki eru utan hins hefðbundna skólakerfis, þ.e. grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla, en geta verið í samstarfi við skóla innan þess.","tasks":["að meta getu nemenda, þarfir og námsmarkmið,","að skipuleggja og undirbúa kennsluverkefni, sjá um kennslustundir og vinnustofur fyrir einstaklinga og hópa,","að leiðbeina og sýna verklega þætti í leiklist, dansi, myndlist eða öðrum listgreinum,","að úthluta æfingum og verkefnum í samræmi við getu, áhugasvið og hæfileika nemenda,","að meta stöðu nemenda og veita ráðgjöf, gagnrýni og hvatningu,","að endurskoða námsskrá, námsefni og kennsluaðferðir,","að undirbúa nemendur fyrir próf, sýningar og námsmat,","að skipuleggja og aðstoða við listflutning eða sýningu á verkum nemenda."],"example_titles":["danskennari","kennari í listmálun","leiklistarkennari"],"notes":null}