{"code":"2359","title":"Sérfræðistörf í kennslu- og uppeldisfræði ót.a.s.","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"235","title":"Önnur sérfræðistörf í kennslu- og uppeldisfræði","level":3},"description":"Undir þennan starfaflokk falla önnur sérfræðistörf við kennslu- og uppeldisfræði sem ekki eru flokkuð annars staðar í deild 23: Sérfræðistörf í kennslu- og uppeldisfræði. Í þessum flokki felst til dæmis kennsla utan hins hefðbundna skólakerfis í öðrum fögum en tungumálum og listum og ráðgjöf til nemenda tengd námi og skólagöngu.","tasks":["að meta getu nemenda, þarfir og námsmarkmið,","að skipuleggja og undirbúa kennsluverkefni og sjá um kennslustundir og vinnustofur fyrir einstaklinga og hópa,","að leiðbeina og sýna verklega þætti viðfangsefnis,","að úthluta æfingum og verkefnum í samræmi við getu, áhugasvið og hæfni nemenda,","að meta stöðu nemenda, veita ráðgjöf og hvatningu og koma með gagnrýni,","að endurskoða námsskrá, námsefni og kennsluaðferðir,","að undirbúa nemendur fyrir próf og námsmat,","að ráðleggja nemendum varðandi nám, svo sem val á námskeiðum og námsleiðum, skipulag náms, mætingu, námstækni og áform um atvinnu,","að ráðleggja nemendum og aðstoða þá við að skilja og takast á við persónuleg og félagsleg vandamál og annað sem getur haft áhrif á menntun þeirra,","að undirbúa nemendur fyrir áframhaldandi menntun með því að hvetja þá til að kynna sér námsmöguleika."],"example_titles":["námsráðgjafi"],"notes":null}