{"code":"2411","title":"Sérfræðistörf við endurskoðun","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"241","title":"Sérfræðistörf í fjármálum","level":3},"description":"Sérfræðistörf við endurskoðun fela í sér að áætla, skipuleggja og stýra reikningsskilakerfum fyrir einstaklinga og fyrirtæki, rannsaka og greina bókhaldsog fjármálagögn og tryggja áreiðanleika og samræmi á milli reikningsskilastaðla og -verklags.","tasks":["að veita ráðgjöf, skipuleggja og innleiða reglur og kerfi fyrir fjárhagsáætlanagerð og aðrar reikningsskilaaðferðir og -kerfi,","að undirbúa og votta reikningsskil og ársreikninga áður en þeir eru kynntir fyrir stjórnendum, hluthöfum eða öðrum aðilum,","að útbúa skattskýrslur, veita ráðgjöf um skattlagningu og vera til ráðgjafar um ágreiningsmál hjá skattayfirvöldum,","að útbúa eða greina frá hagnaðarspám og fjárhagsáætlunum,","að sinna fjármálatengdum rannsóknum vegna fjármálasvika eða greiðsluþrota,","að endurskoða reikninga og bókhald,","að greina gögn og ráðleggja stjórnendum um fjárhagsleg mál."],"example_titles":["endurskoðandi"],"notes":null}