{"code":"2422","title":"Sérfræðistörf við stefnumótun","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"242","title":"Sérfræðistörf í stjórnun","level":3},"description":"Sérfræðistörf við stefnumótun fela í sér að þróa og greina stefnur sem styðja við framtíðarsýn, innleiðingu og breytingar á starfsemi og verkefnum fyrirtækja og stofnana.","tasks":["að ræða við stjórnendur og aðra aðila til að greina hvað það er sem stefnur þurfa að innihalda,","að yfirfara gildandi stefnur og lög og athuga hvað þarf að endurskoða,","að aðstoða stjórnendur við að upplýsa og fræða starfsfólk um hlutverk og markmið stefnumótunar og hvetja til þátttöku,","að rannsaka félagslegar, efnahagslegar og atvinnutengdar horfur sem og væntingar viðskiptavina til verkefna og þjónustu,","að móta og greina valkosti í stefnumótun, undirbúa upplýsingaskjöl og tillögur um stefnubreytingar og veita ráðgjöf,","að meta áhrif, kostnað og samspil við önnur verkefni og stjórnunarlega hagkvæmni stefnumála,","að gera áhættumat á helstu veikleikum og ógnum og ákveða viðbrögð,","að fara yfir starfsemi og verkefni skipulagsheildar og tryggja samræmi við stefnu."],"example_titles":["ráðgjafi við stefnumótun"],"notes":null}