{"code":"2432","title":"Sérfræðistörf við almannatengsl","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"243","title":"Sérfræðistörf í sölu, markaðsmálum og almannatengslum","level":3},"description":"Sérfræðistörf við almannatengsl fela í sér að skipuleggja, þróa og innleiða upplýsinga- og samskiptaáætlanir sem stuðla að skilningi og jákvæðu viðhorfi til fyrirtækja og annarra skipulagsheilda hvað varðar vörur þeirra, þjónustu og hlutverk í samfélaginu.","tasks":["að ákveða og skipuleggja kynningarherferðir og samskiptaáætlanir,","að vera framkvæmdastjórum til ráðgjafar um áhrif af stefnum, áætlunum og starfsvenjum á ímynd skipulagsheildar og útbúa og stýra útgáfu frétta og fréttatilkynninga,","að framkvæma skoðanakannanir, greina niðurstöður þeirra og gera áætlanir varðandi kynningar og herferðir,","að skipuleggja viðburði, málstofur, skemmtanir, samkeppnir og félagslegar samkomur sem stuðla að viðskiptavild,","að koma fram sem fulltrúi skipulagsheildar og sjá um viðtöl við fjölmiðla,","að sækja fundi, samkomur og aðra viðburði til að kynna skipulagsheild,","að velja, leggja mat á og fara yfir efni frá textahöfundum, ljósmyndurum, teiknurum og öðrum sem koma að gerð kynningarefnis."],"example_titles":["almannatengill","upplýsingafulltrúi"],"notes":null}