{"code":"2513","title":"Sérfræðistörf við vef- og margmiðlun","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"251","title":"Sérfræðistörf við þróun og greiningu á hugbúnaði","level":3},"description":"Sérfræðistörf við vef- og margmiðlun felast í að samtvinna þekkingu á hönnun og tækni til að greina, meta, hanna, forrita og breyta vefsvæðum og forritum með texta, grafík, hreyfimyndum, hljóð- og myndefni og öðru gagnvirku efni.","tasks":["að greina, hanna og þróa vefsvæði,","að hanna og þróa stafrænar hreyfimyndir, kynningar, leiki, hljóð- og myndbandsbrot með vefforritun, margmiðlunarhugbúnaði og öðrum forritum,","að ráðfæra sig við sérfræðinga í netkerfum varðandi mál tengd vefsvæðum, öryggi, hýsingu, notendaaðgangi, rekstri og öryggisafritun vefsvæða,","að hanna, þróa og samþætta tölvukóða, svo sem við myndskrár, hljóðskrár og forskriftir til að búa til og viðhalda vefsvæðum,","að aðstoða við að greina og þróa stefnur og aðferðir varðandi vefnotkun."],"example_titles":["vefhönnuður","viðmótsforritari"],"notes":null}