{"code":"2621","title":"Sérfræðistörf í skjala- og safnfræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"262","title":"Sérfræðistörf í safna- og upplýsingafræði","level":3},"description":"Sérfræðistörf í skjala- og safnfræði fela í sér að safna, meta og tryggja örugga varðveislu skjalasafna, safngripa, listaverka og verðmætra skjala af sögulegum, menningarlegum og listrænum toga, skipuleggja, þróa og innleiða skráningarkerfi fyrir kerfisbundna flokkun og varðveislu skjala og muna.","tasks":["að meta og varðveita skjöl í menningarlegum, sögulegum og lagalegum tilgangi,","að skipuleggja og innleiða rafræna umsjón skjalasafna og skráninga,","að stýra vinnu við gerð atriðisorða- og ritaskráa og annarra tilvísunargagna fyrir safnkost og gera þau aðgengileg notendum,","að rannsaka uppruna, dreifingu og notkun efna og hluta af menningarlegum og sögulegum toga,","að skipuleggja, byggja upp og viðhalda safni muna með listrænt, menningarlegt, vísindalegt eða sögulegt gildi,","að stýra eða framkvæma flokkun og skráningu sýningarmuna á söfnum og verkum á listasöfnum og skipuleggja sýningar,","að rannsaka, meta, skipuleggja og varðveita söguleg og verðmæt skjöl, svo sem opinber gögn, ljósmyndir, kort, handrit og hljóð- og myndefni,","að skrifa fræðilegar greinargerðir og skýrslur,","að skipuleggja sýningar, kynna sýningargripi og setja upp sérstakar útstillingar fyrir sérfræðinga, nemendur eða almenning."],"example_titles":["skjalastjóri","sýningarstjóri á safni"],"notes":null}