{"code":"2631","title":"Sérfræðistörf í hagfræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"263","title":"Sérfræðistörf í félags- og hugvísindum","level":3},"description":"Sérfræðistörf í hagfræði fela í sér að sinna rannsóknum, greina og túlka upplýsingar og gögn, skrifa skýrslur, útbúa líkön og spár fyrir efnahagshorfur og veita ráðgjöf varðandi lausnir á efnahags- og rekstrarlegum vanda.","tasks":["að spá fyrir um horfur í efnahagsmálum svo hægt sé að gera fjárhagsáætlanir til skemmri eða lengri tíma,","að veita upplýsingar og ráð um mismunandi stefnur og hugsanleg áhrif þeirra á hagkerfið,","að fylgjast með efnahagsgögnum til að meta árangur og ráðleggja um hæfi í peninga- og ríkisfjármálum,","að spá fyrir um framleiðslu og neyslu tiltekinnar vöru og þjónustu byggt á fyrri framleiðslu og neyslu auk almennra aðstæðna í efnahagslífi,","að útbúa spár um tekjur, gjöld, vexti og gengi gjaldmiðla,","að greina þætti sem ákvarða atvinnuþátttöku, laun, atvinnuleysi og önnur atriði tengd vinnumarkaði,","að beita stærðfræðiformúlum og tölfræðilegum aðferðum til að prófa hagfræðikenningar og finna lausnir á efnahagslegum vandamálum,","að meta árangur pólitískra ákvarðana hvað varðar opinber fjármál og veita ráðgjöf um stefnu í efnahagsmálum,","að skrifa fræðilegar greinargerðir og skýrslur."],"example_titles":["hagfræðingur"],"notes":null}