{"code":"2632","title":"Sérfræðistörf í félagsfræði og mannfræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"263","title":"Sérfræðistörf í félags- og hugvísindum","level":3},"description":"Sérfræðistörf í félagsfræði og mannfræði fela í sér að rannsaka uppruna, uppbyggingu og þróun samfélaga og samspil manna og umhverfis og veita ráð um hvernig hægt er að nýta niðurstöður samfélagslegra rannsókna.","tasks":["að rannsaka uppruna, þróun, uppbyggingu, samfélagsmynstur, skipulag og tengsl samfélaga,","að rekja uppruna og þróun mannkyns með skoðun á mannvistarleifum og breytingum á menningar- og félagslegum stofnunum,","að kanna áhrif náttúrufars og loftslags á efnahag og félagslega og menningarlega þætti,","að greina og meta gögn, þróa kenningar, líkön og aðferðir til að túlka og lýsa félagslegum fyrirbærum,","að meta niðurstöður pólitískra ákvarðana í félagsmálum,","að veita ráðgjöf um hvernig hægt er að beita niðurstöðum við gerð efnahags- og félagslegra stefnuáætlana fyrir þjóðfélagshópa og ákveðin svæði,","að skrifa fræðilegar greinargerðir og skýrslur."],"example_titles":["afbrotafræðingur","félagsfræðingur","fornleifafræðingur","mannfræðingur"],"notes":null}