{"code":"2635","title":"Sérfræðistörf í félagsráðgjöf","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"263","title":"Sérfræðistörf í félags- og hugvísindum","level":3},"description":"Sérfræðistörf í félagsráðgjöf fela í sér að ráðleggja og leiðbeina einstaklingum, fjölskyldum og hópum sem glíma við félagslega og einstaklingsbundna erfiðleika. Fólk sem sinnir þessum störfum ráðleggur einstaklingum og fjölskyldum varðandi réttindi þeirra, aðstoðar skjólstæðinga við að þróa hæfni og nýta þau úrræði og þá þjónustu sem í boði er meðal annars vegna atvinnuleysis, fátæktar, fötlunar, fíknar eða afbrotahegðunar.","tasks":["að ræða við skjólstæðinga, greina og meta aðstæður og vandamál, koma með lausnir og ákveða tegund þjónustu,","að taka saman málaskrár eða skýrslur fyrir dómstóla og annan málarekstur,","að veita ráðgjöf, meðferð, miðla málum og aðstoða skjólstæðinga við að leysa félagsleg og einstaklingsbundin vandamál,","að skipuleggja og innleiða áætlun fyrir skjólstæðinga, sjá um tilvísanir til stofnana og aðstoða skjólstæðinga við að sækja um fjárhagsaðstoð, lögfræðiaðstoð, húsnæði, læknismeðferð og aðra þjónustu,","að rannsaka þegar grunur leikur á ofbeldi eða vanrækslu og grípa til viðeigandi aðgerða til að vernda börn og aðra einstaklinga í hættu,","að vinna með afbrotafólki í og eftir afplánun og aðstoða það við að aðlagast samfélaginu og breyta viðhorfum þess og hegðun til að koma í veg fyrir fleiri brot,","að eiga samstarf við félagsþjónustu, menntastofnanir og heilbrigðisstarfsfólk um velferð skjólstæðinga,","að meta, bæta og þróa velferðarþjónustu."],"example_titles":["félagsráðgjafi"],"notes":null}