{"code":"2642","title":"Störf við gerð og flutning frétta","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"264","title":"Sérfræðistörf við skrif, gerð frétta og þýðingar","level":3},"description":"Störf við gerð og flutning frétta fela í sér að rannsaka, túlka og miðla fréttum og upplýsingum til almennings í gegnum dagblöð, sjónvarp, útvarp og aðra miðla.","tasks":["að finna og taka saman innlendar og alþjóðlegar fréttir, taka viðtöl, afla upplýsinga, sækja viðburði, afla heimilda, fara yfir skrifað efni og fjalla um það,","að safna, greina frá og skrifa um fréttir og fréttatengt efni til útgáfu í dagblöðum og tímaritum eða til útsendingar í útvarpi, sjónvarpi eða á vefmiðlum,","að flytja fréttir úr myndveri, hljóðveri eða frá tilteknu landi eða landshluta,","að taka við fréttaefni og greina og staðfesta heimildir,","að skrifa ritstjórnargreinar og fréttaskýringar,","að skrifa gagnrýni um bækur, kvikmyndir, tónlist o.fl. fyrir dagblöð, sjónvarp, útvarp og aðra miðla,","að sækja íþróttaviðburði og greina frá þeim,","að velja efni til útgáfu, fara yfir stíl, málfar, nákvæmni og áreiðanleika efnis,","að velja, setja saman og undirbúa kynningarefni um fyrirtæki eða samtök til birtingar í fjölmiðlum."],"example_titles":["blaðamaður","fréttastjóri"],"notes":null}