{"code":"2643","title":"Störf við þýðingar, túlkun og önnur málvísindi","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"264","title":"Sérfræðistörf við skrif, gerð frétta og þýðingar","level":3},"description":"Störf við þýðingar, túlkun og önnur málvísindi fela í sér að þýða eða túlka úr einu tungumáli yfir á annað og rannsaka uppruna, þróun og uppbyggingu tungumála.","tasks":["að rannsaka tengsl fornmála og nútímamála, rekja uppruna, skyldleika og þróun orða, málfræði og uppbyggingu mála og kynna niðurstöður,","að veita ráðgjöf um eða þróa flokkunarkerfi fyrir tungumál, málfræðibækur, orðabækur og svipað efni,","að þýða úr einu tungumáli yfir á annað og tryggja að rétt merking frumtexta komist til skila,","að þróa aðferðir til að nota tölvur og tækni til að auka afköst og bæta gæði þýðinga,","að skýra og túlka bókmenntir, sögu þeirra, hlutverk og áhrif,","að túlka mælt mál eða táknmál yfir á annað mál, svo sem á ráðstefnum og fundum,","að lesa yfir og leiðrétta þýðingar."],"example_titles":["bókmenntafræðingur","málfræðingur","táknmálstúlkur","túlkur","þýðandi"],"notes":null}