{"code":"2651","title":"Störf við myndlist","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"265","title":"Sérfræðistörf í listum og skapandi greinum","level":3},"description":"Störf við myndlist fela í sér að skapa listaverk, svo sem höggmyndir, málverk, grafík og teikningar.","tasks":["að hanna og þróa hugmyndir, hönnun og stíl fyrir málverk, teikningar og höggmyndir og velja aðferð og efnivið,","að raða hlutum, leiðbeina fyrirsætum og velja landslag og annan sjónrænan bakgrunn í samræmi við viðfangsefni,","að búa til myndræn eða abstrakt form, þrívíð eða upphleypt, með því að móta, skera, vinna úr og setja saman efni eins og við, stein, gler, leir, málm, ís eða pappír,","að búa til hlutbundnar eða óhlutbundnar teikningar eða málverk með penna, blýanti, bleki, krít, olíulitum, vatnslitum eða með annarri tækni,","að vinna teikningar og skera þær út eða rista í málm, við eða annan efnivið,","að teikna skopmyndir sem lýsa persónum og viðburðum,","að lagfæra skemmd, óhrein og fölnuð málverk og aðra listmuni."],"example_titles":["listmálari","myndhöggvari","skopmyndateiknari"],"notes":null}