{"code":"3112","title":"Tæknistörf í byggingarverkfræði og mannvirkjagerð","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"311","title":"Tæknistörf í eðlisfræði, efnafræði og verkfræði","level":3},"description":"mannvirkjagerð Tæknistörf í byggingarverkfræði og mannvirkjagerð fela í sér að sjá um, skipuleggja og sinna tæknilegum verkefnum við hönnun, byggingu, rekstur, viðhald og viðgerðir á byggingum og öðrum mannvirkjum á borð við vatnsveitu- og skólphreinsunarkerfi, brýr, vegi, stíflur og flugvelli.","tasks":["að framkvæma eða aðstoða við prófanir jarðvegs og byggingarefna í rannsóknarstofum og á vettvangi,","að veita tækniaðstoð í tengslum við byggingu húsnæðis og annarra mannvirkja og við gerð skoðunarskýrslna,","að beita tækniþekkingu um reglur og starfsvenjur á sviði bygginga og byggingarverkfræði,","að aðstoða við mat á magni og kostnaði efnis og vinnu fyrir verkefni,","að skipuleggja viðhald og viðgerðir,","að skoða byggingar og mannvirki á byggingartíma og eftir að byggingu lýkur og tryggja samræmi við forskriftir og staðla og lög og reglur um gæði og öryggi,","að skoða byggingar og mannvirki til að greina áhættuþætti og brunahættu og veita ráðgjöf um hvernig hægt er að fyrirbyggja hana."],"example_titles":["starfsfólk við landmælingar","tæknir við byggingaeftirlit"],"notes":null}