{"code":"3114","title":"Störf í rafeindatækni","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"311","title":"Tæknistörf í eðlisfræði, efnafræði og verkfræði","level":3},"description":"Störf í rafeindatækni fela í sér að sinna tæknilegum verkefnum og aðstoða við rannsóknir, hönnun, framleiðslu, samsetningu, rekstur, viðhald og viðgerðir á rafeindabúnaði.","tasks":["að veita tæknilega aðstoð við rannsóknir og þróun á rafeindabúnaði eða við prófun á frumgerðum,","að útbúa verkteikningar af rafeindarásum,","að undirbúa mat á magni og kostnaði efnis og vinnu fyrir framleiðslu og uppsetningu rafeindabúnaðar,","að hafa umsjón og eftirlit með tæknilegum hliðum framleiðslu, notkunar, viðhalds og viðgerða rafeindabúnaðar í samræmi við staðla og reglur,","að aðstoða við hönnun, þróun, samsetningu, notkun og viðhald rafrænna kerfa,","að skipuleggja eða yfirfara samsetningar með tilliti til öryggis eða sjá um prufukeyrslu nýs rafeindabúnaðar eða -kerfis,","að gera prófanir á rafeindakerfum, safna gögnum og greina þau."],"example_titles":[],"notes":null}