{"code":"3133","title":"Umsjón og rekstur efnavinnslustöðva","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"313","title":"Tæknistörf við umsjón og eftirlit með framleiðslu og ferlum","level":3},"description":"Umsjón og rekstur efnavinnslustöðva felur í sér að sjá um og hafa eftirlit með vélum, vélasamstæðum og tengdum stjórnbúnaði fyrir framleiðslu og stilla og viðhalda vinnslueiningum og búnaði sem eimar, síar, aðskilur, hitar eða hreinsar efni.","tasks":["að sjá um og hafa eftirlit með stjórnborðum í stjórnklefa og fylgjast með og bæta eðlis- og efnafræðileg ferli vinnslueininga,","að stilla tæki, loka, dælur og vinnslubúnað,","að stýra undirbúningi, mælingum og magni hráefna og annarra efna inn í vinnslustöð,","að stýra ræsingu og stöðvun ferla, greina bilanir og fylgjast með vinnslubúnaði,","að gæta að bilunum í búnaði, framkvæma prófanir og gera ráðstafanir um viðhald,","að greina sýni, skrá gögn og skrifa framleiðsluskýrslur."],"example_titles":["eftirlitsfólk véla í efnavinnslu"],"notes":null}