{"code":"3152","title":"Störf skipstjórnenda","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"315","title":"Sérhæfð störf í skipa- og flugsamgöngum","level":3},"description":"Störf skipstjórnenda fela í sér að stjórna og sigla skipum og bátum og sinna tengdri starfsemi í landi.","tasks":["að stýra skipi eða báti á sjó eða skipgengum vatnaleiðum,","að stjórna áhöfn og taka þátt í störfum á þilfari og brú,","að sigla skipum inn og út úr höfnum, gegnum sund og önnur vatnasvæði þar sem þörf er á sérþekkingu,","að tryggja örugga fermingu og affermingu og að áhöfn og farþegar virði öryggis- og verklagsreglur,","að þekkja reglur við rekstur og siglingu skipa til þess að greina og leysa vandamál sem upp koma,","að panta birgðir fyrir skip, ráða áhöfn og halda skýrslur yfir starfsemi,","að senda og taka á móti upplýsingum og neyðarboðum til og frá landi og öðrum skipum."],"example_titles":["hafnsögumaður","skipstjóri á vöruflutningaskipi","stýrimaður á farþegaskipi"],"notes":null}