{"code":"3155","title":"Tækni- og rannsóknarstörf tengd flugöryggi","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"315","title":"Sérhæfð störf í skipa- og flugsamgöngum","level":3},"description":"Tækni- og rannsóknarstörf tengd flugöryggi fela í sér að sinna tæknilegum verkefnum varðandi hönnun, uppsetningu, starfsemi, viðhaldi og viðgerðir á flugstjórnar- og flugleiðsögukerfum.","tasks":["að sinna tæknilegum verkefnum varðandi þróun á rafrænum og tölvuvæddum flugleiðsögukerfum og -búnaði og prófa frumgerðir,","að veita tæknilega aðstoð við hönnun og uppsetningu tengirása í flugleiðsögukerfum og rakningarkerfum sem bera kennsl á loftför,","að undirbúa og taka þátt í gerð kostnaðaráætlana og upplýsinga um tækni og þjálfun fyrir flugumferðarstjórnar- og öryggisbúnað,","að aðstoða við tæknilegt eftirlit með gerð, uppsetningu, rekstri, viðhaldi og viðgerðum flugleiðsögutækjabúnaðar á jörðu og tryggja að farið sé eftir stöðlum og reglum,","að beita þekkingu og færni í reglum og ferlum við tæknivinnu á sviði flugumferðaröryggis til að greina og leysa vandamál sem upp koma,","að breyta flugleiðsögukerfum og -búnaði og laga að nýju verklagi í flugumferðarstjórn fyrir aukna getu og áreiðanleika eða til að auðvelda verklag við stjórnun umferðar á jörðu og í loftrými,","að sjá um, fylgjast með og votta boðskipta-, leiðsögu- og eftirlitsbúnað fyrir flugumferðarstjórn til að tryggja nákvæmni og öryggi flugs, flugtaks og lendingar."],"example_titles":["eftirlitsfólk flugöryggistækja"],"notes":null}