{"code":"3211","title":"Tæknistörf við sjúkdómsgreininga- og lækningatæki","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"321","title":"Tækni- og aðstoðarstörf á sviði lækninga og lyfjafræði","level":3},"description":"lækningatæki Tæknistörf við sjúkdómsgreininga- og lækningatæki fela í sér að prófa og vinna með röntgenmynda-, ómskoðunar- og önnur læknisfræðileg greiningartæki í því skyni að greina og meðhöndla meiðsli, sjúkdóma og aðrar skerðingar. Fólk sem sinnir þessum störfum getur veitt sjúklingum geislameðferð undir eftirliti geislalæknis.","tasks":["að stjórna eða hafa umsjón með rekstri röntgen-, ómskoðunar- og segulsneiðmyndatækja og framkalla myndir til greiningar,","að útskýra verklag, fylgjast með og koma sjúklingum fyrir og nota hlífðarbúnað til að tryggja öryggi meðan á athugun, skönnun eða meðferð stendur,","að staðsetja myndgreiningar- eða meðferðarbúnað, fylgjast með myndskjáum og breyta stillingum og stjórntækjum samkvæmt tæknilegum upplýsingum,","að skoða og meta röntgenmyndir, myndbönd eða aðrar tæknilegar upplýsingar og skrá árangur meðferða,","að hafa eftirlit með ástandi og svörun sjúklinga og gefa lækni skýrslu,","að mæla og skrá geislunarmagn eða geislavirk lyf sem sjúklingar fá samkvæmt fyrirmælum læknis,","að gefa, greina og kortleggja geislavirk lyf eða geislun í líkama sjúklinga, nota geislavirka samsætu, myndgreiningatæki eða annan búnað til að greina og meðhöndla sjúkdóma,","að skrá, geyma og farga geislavirkum efnum samkvæmt öryggisreglum."],"example_titles":["geislafræðingur","röntgentæknir"],"notes":null}